NORA mælir með…
Fylgdu NORA á Facebook til þess að fá nýjustu fréttir og tilkynningar frá svæðinuHvað er NORA?
Norræna Atlantssamstarfið (NORA) eru fjölþjóðleg samtök sem falla undir samstarf Norrænu Ráðherranefndiarinnar um byggðastefnu.
Starfssvæði NORA nær til Grænlands, Íslands, Færeyja og strandhéraða Noregs (níu norskra strandfylka frá Finnmörku í norðri til Rogalands í suðri svo). Landfræðileg lega, sameiginleg einkenni, viðfangsefni, saga, stofnanir svo og menningarleg bönd tengja NORA-löndin.
NORA er ætlað að styrkja samstarf á svæðinu með það að markmiði að gera Norðuratlantssvæðið að öfllugu norrænu svæði, sem einkennist af sterkri sjálfbærri efnahagsþróun. Þetta er meðal annars gert með því að styðja við samvinnu milli fyrirtækja í atvinnurekstri og rannsókna- og þróunarsamtaka þvert á landamæri.
NORA er fjármagnað af Norrænu ráðherranefndinni ásamt framlagi allra fjögurra landanna sem að samstarfinu standa. Nefnd NORA, sem í eru tólf fulltrúar, þrír frá hverju landi á NORA-svæðinu, móta stefnuna sem birtist í skipulagsáætlun NORA.
Skrifstofa NORA er í Þórshöfn í Færeyjum. Í öllum hinum fjórum löndunum eru tengiliðir á landsskrifstofum á Grænlandi, Íslandi, í Vestur- og Norður-Noregi.
Í kaflanum Hvað gerir NORA? getur þú lesið um helstu viðfangsefni NORA.
